Einar K. Guðfinnsson leyfði hrefnuveiðar þrátt fyrir andstöðu ráðherra Samfylkingarinnar. Fordæmi hefur verið gefið í ríkisstjórninni. Einstakir ráðherrar geta gefið skít í alla ráðherra samstarfsflokksins samanlagða. Jóhanna Sigurðardóttir í velferðarráðuneytinu hlýtur að taka eftir þessu. Þórunn Sveinbjarnardóttir í umhverfisráðuneytinu getur það, ef hún vaknar til lífsins. Hvor flokkur um sig getur hér eftir stjórnað sínum ráðuneytum að eigin geðþótta. Þetta stöðvar náttúruspjöll og velferðarspjöll. Gerir Geir H. Haarde að valdalausum fundarstjóra ríkisstjórnarinnar. Bravó.