Orðið einelti var gengisfellt á síðustu mánuðum. Útrásarbófar og bankabófar segjast sæta einelti saksóknara. Samt er bara um hefðbundnar rannsóknir að ræða. Nokkrir Hvergerðingar segja Hveragerði sæta einelti gagnrýnenda. Samt er um að ræða gagnrýni á lin viðbrögð skólans við einelti. Framkvæmdastjóri hjá Seltjarnarnesi segist sæta einelti bæjarstjóra. Samt er bara um að ræða eðlilegan skoðanaágreining. Íslendingum er ótamt að skýra mál sitt vitrænum rökum. Því grípa þeir til handhægra slagorða úr umræðunni. Nú er í tízku að sæta einelti. Því gengisfellur orðið og verður verðlaust eins og krónan.