Gerir grín að minni máttar

Punktar

Húmoristinn á Strætó SAGÐI: „Sem betur fer er hann þó ekki meira einhverfur en það, að hann getur þó allavega ratað heim.“ Reglurnar segja þó, að Strætó eigi að keyra skjólstæðinga heim. En það er meira blóð í kúnni: Bílstjórinn „segist hafa séð hann ganga inn um dyrnar. Og samkvæmt okkar skráningum þá eru engar sérstakar skráningar um þennan aðila.“ Hann trúir, að bílstjórinn sjái gegnum holt og hæðir eða hafi keyrt í humátt eftir drengnum. Heldur, að bara þurfi að fara eftir reglum, sé það tekið fram í hvert sinn. Jóhannes Rúnarsson forstjóri er fífl í þörf fyrir almannatengil. Ævintýri einkavæðingar Strætó er fullreynt.