Margt fer aflaga í Evrópu. Samt hvergi neitt samansafn bjána í líkingu við stjórnvöld og peningavöld í tíð Flokksins og hjálparflokka hans. Við þurfum Evrópu til að bjarga okkur undan heimagerðu hruni. Önnur ríki hrundu ekki. Hrunið hér var framleitt með gerræði heimalninga úr lagatæknideild Háskóla Íslands. Sérstaklega þeim, sem skipuðu stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Við höfum um áratugi sætt gerræði fávísra karla á borð við Davíð Oddsson og Eimreiðarhópinn. Sem komu sér fyrir í helztu stofnunum ríkisins. Við þurfum að fá evrópska stjórnsýslu í stað gerræðis heimaalinna lagatækna.