Hér þarf að grínast meira að Múhameð spámanni og guði hans Allah. Líkt og gert er grín að Jesúm og guði hans. Kristnir sætta sig flestir í stórum dráttum við móðganir. Múslimar þurfa einnig að venjast slíku, ef þeir kjósa að búa hér á vesturlöndum. Reglubundið grín að Múhameð og Allah hefur líka þá aukaverkun, að strekktir öfgamúslimar missa kúlið, segja eða skrifa eitthvað. Gefur lögreglu og innanríkisráðuneyti færi á að afstýra frekari hættu með því að skutla slíkum til útlandsins. Þannig fækkar þeim í landinu, sem gætu freistast til að valda umhverfi sínu ónæði með ólögmætum hætti. Er einfaldara en forvirkar njósnir.