Góð reynsla af EasyJet

Punktar

Hef mikið notað EasyJet og aldrei orðið fyrir vonbrigðum. Allt stenzt eins og stafur á bók og aldrei neinar seinkanir. Verðið er svo sér á parti og gerir okkur kleift að ferðast meira. Mikilvægt hér á landi eftir að Wow hækkaði fargjöld og nálgaðist Icelandair. EasyJet er samkeppni á lággjaldamarkaði. Nú fjölgar EasyJet áfangastöðum og tvöfaldar sætaframboðið. Genf í Sviss finnst mér áhugaverður staður, einkum vegna samgangna við Ítalíu og Suður-Frakkland. Mestu máli skiptir þó, að koma EasyJet eykur þrýsting á ferðaþjónustuna hér heima. Gæti eflt hana um tugi milljarða króna á ári. Í alvöru gjaldmiðlum.