Andstæðingar fjölmenningar fara ekki með tómt bull. Reynslan á Norðurlöndum er tvíbent. Sum hverfi verða gettó, þar sem ekki gilda landslög, heldur sharia eða mafia. Tilgangslaust er að lemja höfðinu við stein og hrista síðan haus yfir uppgangi öfgaflokka á Norðurlöndum. Fólk hefur þar séð fjölmenninguna og líkar miður það, sem það sér. Sumir hælisleitendur koma úr ólíkum menningarheimi og neita að laga sig að aðstæðum í nýju landi. Einföld staðreynd, augljós hverjum, sem sjá vill. Efasemdarfólk hræðist aukinn flóttastraum. Flykkist til flokka, sem vilja loka landamærum. Eindregin fjölmenningarstefna er ávísun á vandræði.