„Gott á ykkur“ æpa skrímslin

Punktar

Hinn gamli 40% flokkur stétta með stéttum gróf sig niður úr 25% botninum og stefnir á 20% fylgi. „Gott á ykkur, burt með ykkur“ æpir skrímsladeildin að brotthlaupsfólkinu. Hún telur sig ná betri tökum á minni flokki. Flokkurinn rekur harðsvíraða hagsmunagæzlu fyrir þá allra ríkustu, einkum kvótagreifana. Formaður flokksins hefur drýgt höfuðsynd í svo miklum svikum, að engin leið er að fela það í meðvirkni. Þar á ofan hefur komið í ljós, að hann er bara í plati. Hinn raunverulegi formaður er Davíð Oddsson, hrunverji nr. 1, dýrasti maður Íslandssögunnar, á heimsmetaskrá Time Magazine yfir fávita í fjármálum.