Grunsamleg skilanefnd Landsbanka

Punktar

Skilanefnd Landsbankans fékk sér ekki rannsóknafyrirtækið Kroll til hjálpar. Kroll hjálpaði hins vegar skilanefnd Glitnis og á mikinn þátt í aðgerðum hennar gegn bófaflokki Jóns Ásgeirs. Skilanefnd Landsbankans ætti að fá fyrirtækið sér til hjálpar. Flest bendir til, að tjón ríkisins af völdum Landsbankans sé mun meira en samanlagt tjón af völdum Kaupþings og Glitnis. Ennfremur vakti athygli, að skilanefnd Landsbankans tregðaðist við að senda mál til Sérstaks saksóknara. Formaður nefndarinnar er einmitt heilagur Lárentsíus, sem kvartaði yfir opinberum afskiptum af þagnarmúr lögmanna.