Gulli og hin eru eftir

Punktar

Steinunn Valdís sagði af sér þingmennsku, fyrst allra þingmanna. Nokkrir voru áður búnir að fara í frí. Nú eru bara eftir þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Með Guðlaug Þór Þórðarson í broddi fylkingar. En hann er ekki einn um að þurfa að segja af sér. Allur toppur borgarstjórnarlistans neitar að gera hreint fyrir fjármálum prófkjöra. Og hálfur þingflokkurinn angar af fjölbreyttri spillingu. Þar má finna skattsvik, dæmdan þjófnað, kúlulán, vafninga, milljarða misnotkun á aðstöðu. Svo nefnt sé það helzta, sem hefur verið í fréttum. Sjálfstæðisflokkurinn er sjálfur umbi spillingar.