Gulur forstjóri Haga

Punktar

Finnur Árnason sýnir fjölmiðlum dónaskap. Segir þá ofsækja Haga, þegar þeir birta satt og rétt. Kaupþing hefur sett Högum gæzlumann vegna feikilegra skulda eiganda Bónusar, Hagkaups og fleiri verzlana. Hagar skulda Kaupþingi 30 milljarða króna. Eðlilegt er, að fjölmiðlar lýsi meðferð slíkra mála. Finnur getur ekki snúið út úr því. Allt of algengt er, að gulir forstjórar ráðizt á fjölmiðla, sem gegna skyldum sínum og birta satt og rétt. Fyrir nokkrum árum gagnaðist stjórnendum Bónusar og Hagkaups að tala um ofsóknir gegn fyrirtækjunum. En sá tími er liðinn, að þeir komist upp með slíkt.