Fólk er farið að átta sig á Gylfa Arnbjörnssyni, forseta Alþýðusambandsins. Á borgarafundinn um helgina talaði hann í hringi. Lára Hanna Einarsdóttir, larahanna.blog.is, lýsti honum vel í bloggi sínu. Hann talar eins og gamall pólitíkus frá síðustu öld. Fór á fundinum eins og köttur kringum heitan graut. Svaraði spurningum út og suður. Hagfræðingar sambandsins eru af sama meiði. Tala tungumál græðgisvæðingarinnar eins og aðrir hagfræðingar. Spurning er, hvort þetta gengi eigi ekki frekar að vera fyrirtækjamegin í lífinu. Meðan svo er ekki sígur Gylfi Arnbjörnsson í áliti.