Gylfi neitar að svara

Punktar

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra neitaði að svara fyrirspurn um skuldastöðu og afskriftir, skuldaflutninga og lánafrystingu í sjávarútvegi. Svaraði með almennri froðu, sem var orðrétt eins og svarið við allt annarri fyrirspurn. Gylfi hefur ofmetnast í embætti. Telur sér ekki skylt að svara fyrirspurn alþingismanns. Eðlilegt hefði verið, að ráðuneytið aflaði yfirlitsþekkingar á spurningunum, en Gylfi nennti því ekki. Í hvert sinn sem ríkisstjórnin fer í hrokagírinn, skefst utan af trausti fólks á henni. Á endanum missir hún alveg stuðning almennings. Gylfi Magnússon flýtir fyrir þeirri niðurstöðu.