Hænur þjóta í Holtinu

Punktar

Við hjónin sigldum til sætis í Holtinu í kjölfar yfirþjónsins. Innkoman sætti skelfingu Haraldar Johannessen, sem sat þar við annan mann. Þeir voru búnir að panta, matseðlarnir voru horfnir. Eftir fimm mínútna vanlíðan flúði ríkislögreglustjórinn út á götu. Í annað sinn sátum við hjónin þar í velsæld. Þá kom Davíð Oddsson í gættina, en hrökklaðist öfugur til baka. Tveim mínútum síðar skauzt Hannes Hólmsteinn í tvígang úr anddyri í eldhús. Dílum hans lauk með, að félagarnir læddust sem krimmar inn í gluggalausa kompu við eldhúsið. Mér líður vel í Holtinu, hænurnar þjóta í allar áttir.