Ég er búinn að fá upp í háls af hagsmunasamtökum 400 fermetra íbúða. Tími er kominn til að hætta eltingaleik ríkisstjórnarinnar við þessi samtök. Hann gerir ekki annað en að halda við rugluðum hugtökum um forsendubrest og skort á greiðsluvilja. Búið er að gera heilmikið til að létta fólki byrðar af gengishruni krónunnar og tilheyrandi verðbótum. Nú þarf sértækar aðgerðir fyrir ungt fólk, sem keypti litlar íbúðir á síðustu árunum fyrir hrun. Ríkistjórnin þarf að loka þessu máli og fara að sinna öðru. Ríkissjóður er búinn að taka á sig meira en skattgreiðendur og þjónustuþegar ráða við.