Hættulegur Obama

Punktar

Barack Obama er að verða hættulegri en George W. Bush. Kominn í stríð við Pakistan ofan á stríðið við Afganistan. Hótar til viðbótar stríði við Íran. Sendir ómannaðar flugvélar í sprengjuárásir á Pakistan gegn vilja yfirvalda þar í landi. Öll þjóðin í Pakistan hatar Bandaríkin rétt eins og öll þjóðin í Afganistan. Þetta endar eins og í Víetnam, með þyrlum á þaki sendiráða að bjarga bandarískum landstjórum. Obama telur Bandaríkin nafla alheimsins og hagar sér eins og guð almáttugur. Liggur yfir plönum um, hverja skuli taka af lífi í ómönnuðum loftárásum og hverja ekki. Líkist Nixon í afglöpunum.