Hagsmunagæzlumenn vilja töf

Punktar

Tveir hagsmunagæzlumenn vilja, að sannleiksnefndin gefi pólitíkusum meiri tíma til að verjast ásökunum. Karl Th. Birgisson gætir hagsmuna Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og fleiri krata. Hannes Hólmsteinn Gissurarson gætir hagsmuna Davíðs Oddssonar og fleiri hrunverja. Þeir reyna að fá skýrsluna dregna á langinn, að minnsta kosti fram yfir þjóðaratkvæðagreiðslu. Nóg töf er komin á mál þetta, þótt ekki takist að drepa því á dreif á forsendum þeirra félaga. Telji einhverjir sig þurfa meiri tíma til andsvara, geta þeir væntanlega lagt þau inn síðar, þótt skýrslan sjálf komi út í þessum mánuði.