Hagsmunategsl í Evrópu

Punktar

Dæmigerður er stuðningur Evrópusambandsins við erfðabreytt matvæli gegn andstöðu margra ríkja sambandsins og enn fleiri landshluta. Embættismenn, sem stjórna sambandinu, eru í vaxandi mæli háðir þrýstihópum, sem bera á þá fé. Sjónarmið almennings eru að engu höfð og þingið er nánast valdalaust skrípó. Evrópusambandið er sambandslaust við alþýðu manna í Evrópu. Ég studdi sambandið fyrir áratug, en síðan hafa mál þess þróast hratt á verri veg. Stöðvast hafa umbætur í átt til lýðræðis. Það hallar sér í staðinn að óprúttnum hagsmunaðila á borð við Monsanto, sem framleiðir erfðabreytt korn.