Hálfur þingflokkur spilltur

Punktar

Hálfur þingflokkur sjálfstæðismanna er flæktur í spillingu. Þar er sá, sem ætlaði að verða ríkur af vafningum á kostnað Sjóvá. Þar er fólk, sem ætlaði að verða ríkt af kúlulánum út á ekki neitt. Þar er maður, sem stundaði skattsvik og arðgreiðslur úr taprekstri. Heimtar svo, að annað fólk fái sér heiðarlega vinnu. Þar er maður, sem sat í fangelsi fyrir þjófnað. Þar er fólk, sem safnaði rosamútum frá bankabófum. Hálfur Flokkurinn á þingi hefur misnotað aðstöðu sína grimmt. Þetta eru eftirlegur hrunsins. Með stuðningi þriðjungs þjóðarinnar. Þjóðin lærir ekkert og við liggjum áfram í forinni.