Hálfur flokkur repúblikana í Bandaríkjunum er handan heilbrigðrar skynsemi. Þar trúa menn, að Barack Obama sé fæddur í Afríku. Að George W. Bush hafi staðið sig vel í tengslum við fellibylinn Katrínu. Að hann hafi verið góður forseti, þrátt fyrir bankakreppu, aukið atvinnuleysi og tvenn vonlaus stríð í Afganistan og Írak. Þetta fólk elskar Sarah Palin. Þetta minnir mig á, að nær hálfur Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi er handan heilbrigðrar skynsemi. Hefur Davíð Oddsson að leiðtoga lífs síns og vill aftur fylgja honum fram af brúninni. Telur hann hafa sýnt frábæra fjármálasnilli í aðdraganda hrunsins.