Hanga um háls Bjarna

Punktar

Kjartan Gunnarsson segir eitt um afskiptaleysi sitt af tugmilljón króna styrkjum til flokksins, Bjarni Benediktsson segir annað. Andri Óttarsson segir eitt um afskiptaleysi sitt, Bjarni Benediktsson segir annað. Þegar misræmið kemur í ljós, bakkar formaður flokksins út í muldur, sem enginn skilur. Samt eru upphæðirnar slíkar, að þær eru meiriháttar frétt. Minni frétt fer hraðar milli bæja en þessi. Á sléttu yfirborðinu þykist enginn kannast við kraftaverk, sem hundrað flokksmenn hljóta að hafa vitað um. Milljónirnar sextíu hanga áfram formanninum um háls. Fram yfir kosningar.