Kristján Loftsson hefur sérstæða hæfileika. Gera honum kleift að beita hverri ríkisstjórn á fætur annarri fyrir hagsmunavagn sinn. Er svo fyrirferðarmikill, að ríkisstjórn Bandaríkjanna neitar að hafa samskipti við íslenzka ráðamenn og diplómata út af hvalveiðum. Þjóðin hefur töluverðan herkostnað af því. Eins og ekkert sé kastar Kristján olíu á reiðielda láglaunafólks. Með því að hækka laun stjórnarmanna tífalt meira en skítapakkinu er boðið sama dag. Notar 1. maí til að benda fulltrúum lífeyrissjóða stéttarfélaga á að skipta sér ekki af rekstri fyrirtækja þeirra. Jafnan rísa hárin á fólki, þegar Kristján birtist á skjánum.