Heilt IceSave á hvern bófa

Punktar

Ýmsar tölur hafa verið nefndar um tjónið af útrásinni. Oft er staðnæmst við töluna 8000 milljarðar. Þar af 7000 milljarðar á kostnað útlendinga og 1000 milljarðar á kostnað Íslendinga. Mikið af þessu fé brann í botnlausu rugli, en hluta af því var beinlínis stolið. Ég áætla, að 1000 milljörðum hafi verið komið undan. Um tuttugu fjárglæframenn stálu mestu, líklega sem nemur einu IceSave á hvern útrásarbófa. Fimmtíu milljarðar á mann eru algeng tala. Bófarnir tuttugu gagna enn lausir, þótt flestir hafi flúið land. Nú fer að verða brýnt að ná í alla þessa Tortola-peninga til að lina þjáningar okkar.