Heimavarnarliðið

Punktar

„Við erum heimavarnarliðið“ sagði framsóknarmaður við mig í dag. Þannig hugsa þeir, sem láta SDG selja sér þá hugmynd, að Framsókn gerist fóstra þeirra, er óttast og hata. Hata breytingar, borgina, útlandið, Evrópusambandið, moskuna. Framsókn hyggst æsa uppi hugi heimskra, sem skilja ekki deigluna, óttast hana og hata. Kollsteypur í þjóðfélagi rækta jarðveginn og hér var hrunið stóra orsökin. Margir fóru illa út úr því og urðu næmir fyrir róttækri þjóðrembu. Eftir ringulreið Weimar-tímans kom Hitler og sagði „Þýzkaland fyrir þýzka“. Hér segja menn eins og framsóknarmaðurinn í morgun „Ísland fyrir Íslendinga“.