Haldið þið, að heimurinn sé að skána? Þið ættuð að líta á nýjustu spá Associated Press um úrslit næstu forsetakosninga í Bandaríkjunum. Samkvæmt henni mun Barack Obama rétt merja John McCain með 48% gegn 42%. Enn tæpar mun standa hjá Hillary Clinton, sem fær 46% gegn 45% hjá McCain. Þar að auki eru allir þessir frambjóðendur pólitískt líkir George W. Bush. Ekki er hægt að gera ráð fyrir miklu fráviki frá þeirri stefnu, sem hefur stefnt mannkyni í volæði síðustu sjö árin. Vandræðin í heiminum eru ekki Bush einum að kenna. Þegar hann verður leystur af, verður ekki himnaríki á jörð.