Uppsláttur brezka Independent í morgun er um, að fulltrúar rannsóknarnefndar þingmanna um bankaspillingu segist ekki geta dregið fram sannleikann. Þeir eru óánægðir með svör bankastjóra Barclay. Vilja fá Bob Diamond bankastjóra aftur fyrir nefndina. Svör hans hafa hingað til þótt vera út úr kú. Við erum máttlausir, sagði einn þingmaðurinn. Við erum gagnslausir, sagði annar. Það er að renna upp fyrir Bretum, að bankarnir eru óviðráðanlegt ríki í ríkinu. Enda hefur komið í ljós, að meira en helmingur af fjármagni íhaldsþingmanna kemur frá bönkunum. Spillingin er að því leyti svipuð og í Bandaríkjunum.