Hér er aldeilis engin kreppa

Punktar

Krítarkortin virkuðu í kreppunni og æ síðan. Nóg er að bíta og brenna. Búðir eru fullar af jólavarningi. Auglýsingarnar snúast um dýrar vörur á borð við tuttugu megapixla myndavélar og tvöhundruðþúsund króna tölvur. Innflutningur er eins og hver getur í sig eða á sig látið. Samt kvarta menn. Bankahrunið hafði ótrúlega lítil áhrif. Bankasamskipti við útlönd hikstuðu bara í nokkra daga. Seðlabankinn er fullur af evrum í boði Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Meirihluti þjóðarinnar hefur það bara gott. Vandinn er samt til, en hann er afmarkaður. Bankahrunið leiddi til vandamála, en ekki til neinnar kreppu.