Hér þarf bara byltingu

Punktar

Gera þarf byltingu á Íslandi. Ef einhverjir nenna því, mun ég styðja þá. Hér þarf að afnema alla bankaleynd. Hér þarf að skilgreina fjármál sem opinber mál. Hér þarf að ógilda allar ríkisábyrgðir. Hér þarf að þjóðnýta kvótann, deila honum á byggðir og bjóða út rekstur hans. Hér þarf sólskinslög um, að allar gerðir stofnana og fyrirtækja séu háðar upplýsingaskyldu. Þetta eru atriðin, sem eru í ólagi á Íslandi. Valda því, að bófar stjórna stofnunum og fyrirtækjum. Ríkisstjórnin hefur sannað, að hún bætir ekki þjóðfélagið. Hún er arfur frá spilltum tíma. Burt með hana og burt með allan sexflokkinn.