Kosningabaráttan fer óvenju hægt af stað. Hef aðeins séð þrjár auglýsingar, heilsíðu tölvumynd, sem sögð er vera borgarstjóraefni Sjálfstæðis. En þetta er ekki mynd af honum, ég hef séð hann og hann er lítur ekki svona út. Búið er að fjarlægja undirhökuna og hálfan hálsinn. Þetta er bara fótósjopp, eins og Flokkurinn er sjálfur. Í heimi fótósjopps gilda alls ekki lög veruleikans, heldur röð falsmynda. Flokkur auðgreifa í sjávarplássum þykist vera flokkur borgarbúa. Býður fram þorpsbúa sem borgarstjóra. Lýgur sig inn á kjósendur og lætur þá svo borga sinn eigin heilaþvott, samanber gerðir ríkisstjórnarinnar.