Herra önugur

Punktar

Kom í bæinn í gær. Þar eru því miður engir hestar. En Fréttablaðið bjargaði deginum. Ég er í úrslitum í keppni um Herra Önugur. Það hef ég lengi þráð. Búinn að andskotast út í allt og alla, án þess að fá réttmæta heiðrun fyrir óeigingjarnt starf. Eiður er þarna á listanum sem Herra Önugur. Hann á líka heiður skilið. Hefur daglega lamið með reglustriku á skalla blaðamanna, útvarpsmanna og sjónvarpsmanna. Þeir hata hann eins og pestina, því að hann segir oftast satt. Kunna enga íslenzku og hafa engan áhuga á að kynna sér hana. En ég skil ekki, hvað Davíð Oddsson er að gera á virðingarlistanum.