Sorglegt er að sjá viðbrögð innanríkis og forsætis við svokallaðri afsögn Hönnu Birnu. Svo siðblind, að þau sjá ekkert rangt við afskipti ráðherra af rannsókn máls. Eftir þeirra bók er Hanna Birna fórnardýr vondrar þjóðar. Valdamenn almennt eru fullir hroka, illsku og heiftar og spegla það í þjóðinni. Ráðherrarnir eru sjálfir gerendur málsins, ekki þjóðin, sem finnur bara til sársauka og reiði. Svona blindar valdið ráðamenn og gerir brýnt að skipta um þá á fjögurra ára fresti. Sigmundur Davíð og Hanna Birnu urðu að vísu óalandi og óferjandi á mun skemmri tíma. Hvenær linnir ofsóknum hinnar illu stjórnar gegn þjóðinni?