Hlustið ekki á vitleysinga

Punktar

Ég trúi Þór Saari. Hann segir sérfræðingana, sem komu fyrir Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis ekki hafa verið með fæturna á jörðinni. Þeir hafi talað eins og hér hafi ekki orðið neitt efnahagshrun. Flestir vildu halda áfram eins og ekkert hafi í skorizt. Þetta voru sérfræðingar frá bönkum, stjórnsýslu og hagsmunasamtökum. Ég þekki þetta. Hlustaði í vetur á fræðing frá Alþýðusambandinu á stjórnmálanámskeiði hjá Samfylkingunni, þar sem ég var ræðumaður. Hann bullaði tóma frjálshyggju. Ég öfunda ekki ríkisstjórn og þingmenn af að þurfa að hlusta á vitleysingana. Hlustið bara á útlendinga.