Hlutverk spunakarla

Punktar

Spunakarlar auka áhrif sín í pólitíkinni hér á landi sem annars staðar. Við sjáum dæmi um, að ímynd pólitíkusa breytist. Hegðun þeirra breytist, Geir Haarde er ekki eins reiður og stundum áður. Þeir lita hárið, fara í aðgerð til fegrunar. Þeir fylgja nákvæmri dagskrá, sem stækkar jákvæð atriði og minnkar neikvæð. Geir skal tímasetja blaðamannafundi þannig, að fréttamenn ljósvakamiðla hafi lítinn vinnslutíma. Þá eru minni líkur á, að þeir leiti viðbragða við tali Geirs. Þannig er hlutverk spunakarla að villa um fyrir kjósendum. Láta þá halda, að Geir sé sterkur pólitíkus, ekki undirmáls.