Hömrum hitað járnið

Punktar

Hrun Sjálfstæðisflokksins stafar af undirgefni Bjarna Benediktssonar við loddarana Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Davíð Oddsson. Almennir kjósendur hafna þverbeygjunni í stefnu flokksins og ráfi foringjans. Vilja færi á að kjósa um framhald aðildarviðræðna. Æðibuna fífla, fóla og siðblindingja ríkisstjórnarinnar fór illa í fólk. En fylgishrunið er ekki endastöð, bara upphafspunktur á löngu og erfiðu ferli. Markmiðið er að losna við bófaflokka úr pólitík og koma á lýðræði. Járnið er bara orðið heitt. Hér eftir verður að hamra það viðstöðulaust. Komum svikurum, bófum og loddurum frá völdum.