Þekktasta einkavinavæðing fyrirhrunsáranna var menntaskólinn Hraðbraut undir pilsfaldi þáverandi menntaráðherra Sjálfstæðisflokksins. Ríkisendurskoðun komst að svindlinu. Upplýsti, að skólinn sogaði til sín fjármagn umfram aðra skóla og kom því fyrir í arði á aflandseyjum. Nemendur voru færri en vera átti samkvæmt greiðslum. Skólinn var lagður niður, þegar ný ríkisstjórn tók við og fór að spara í sukkinu. Nú er komin illvíg sukkstjórn, sem elskar einkavinavæðingu og arð handa gæludýrum. Illuga Gunnarssyni lízt því vel á, að Hraðbraut verði endurvakin. Senn fær hún því aftur að mjólka ríkissjóð.