Hræddir og trylltir

Punktar

Bandaríkjamönnum hefur tekizt að sameina Íraka gegn sér, enda er ástandið í landinu orðið verra en það var á dögum Saddam Hussein. Stríðsglæpasveitir bandaríska hersins hafa drepið meira en 10.000 óbreytta borgara, að meirihluta konur og börn. Jafnframt hafa þær svívirt helgidóma múslima. … Það hlýtur að valda mörgum Íslendingum áhyggjum, að landsfeður okkar skuli ekki játa eins og ýmsir aðrir landsfeður, að þeir hafi á fölskum forsendum verið ginntir til stuðnings við stríðið. Þeir eru því enn aðilar að stríðsglæpunum í Írak og ataðir blóði saklausra borgara. …