Hér og þar heyrast raddir um, að óþarfi sé að ofsækja gamla ráðherra á borð við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir. Flestar þessar raddir hafa lítið fjallað um ofsóknir hrunstjórnarinnar gegn heimilum landsmanna. Ég hef meiri samúð með almenningi en ráðherrum hrunstjórnarinnar. Ingibjörg Sólrún rífur bara kjaft í hroka og skætingi. Björgvin G. Sigurðsson bíður færis að komast aftur á þing. Halldór Ásgrímsson situr í vellystingum í Kaupmannahöfn. Frá Mogganum stjórnar Davíð greifi Flokknum sínum. Þorgerður Katrín er komin aftur. Hressastur er Guðlaugur Þór, kennir Jóhönnu og Steingrími um hrunið.