Húsnæðismálastjórnarlán

Punktar

Það hétu fasteignalánin, þegar ég var ungur og pólitísku flokkarnir úthlutuðu. Ég neitaði að segja til trúar í pólitík og nefndin lenti í vandræðum. Til að leysa málið skiptu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur mér í tvennt og tóku hvor sinn helming af sínum kvóta. Mér var sagt, að þetta hefði verið fyrsta bilunin í skelfilegu kerfi þess tíma. Þetta var árið sem Jónas Rafnar bankastjóri efaðist um pólitíska rétttrú mína og sagði mér að fara heldur til framsóknarbankastjóra. Svo mikil framför hefur orðið, að menn trúa varla sögum af helmingaskiptum kolkrabbatímans.