Sjálfstæðisflokkurinn telur sig vera hornsteininn, sem má gæðastimpla og innleiða velferð seint og um síðir. Hann er eins og brezka íhaldið. Eins konar fjármálaráðuneyti varfærinna manna á bremsunni. Sem hefur þó aldrei flutt vísinn eina sekúndu aftur á bak. Flokkurinn rauf þetta lögmál. Davíð flutti vísinn aftur á bak með nýfrjálshyggjunni. Hún fór með fjárhag okkar til andskotans. Flokkurinn stýrði þjóðinni í hrunið. Hann er ekki lengur hið varfærna öryggi okkar. Kjósendurnir þekkja ekki lengur flokkinn sinn. Skoðanakannanir sýna líka, að fylgi Davíðs og Geirs er varanlega laskað.