Hvað er að þessari ömurlegu ríkisstjórn? Hún lætur Finn Sveinbjörnsson vaða uppi sem meintan brunaliðsmann. Bankastjóri Kaupþings heimtar lögbann á fréttir af Stóra Bankaráninu 25. september síðastliðinn. Af hverju er Finnur ekki rekinn? Á stundinni. Hvaðan ætlar ríkisstjórnin að fá traust almennings til erfiðrar forustu í ofsaveðrinu? Hefur ríkisstjórnin alveg gleymt hlutverki sínu? Og af hverju er það Eva Joly, sem predikar fyrir hönd Íslands á helztu götuhornum heimsins? Af því að Jóhanna og Steinghrímur eru ófær um að gegna hlutverki sínu. Ríkisstjórnin virðist vera botnfrosin.