Hvítskúraðir hvítflibbar

Punktar

Hvítflibbamenn fá sérmeðferð í dóms- og fangelsiskerfinu. Kerfiskarlar ráða ekki við að dæma jafningja og að halda þeim í fangelsi. Fá ekki skilið, að fínimenn og broddborgarar geti verið bófar. Samt eru glæpir hvítflibbamanna oftast umfangsmeiri en glæpir venjulegra þjófa. Baldur Guðlaugsson er gott dæmi, hafði 193 milljónir af bankanum og óbeint af skattgreiðendum. Hann fær sérmeðferð. Áður höfðum við dæmi af Daníel Þórðarsyni og Stefni Agnarssyni í Kaupþingi. Þeir fengu sérmeðferð. Þannig verða hrunverjar allir meira eða minna hvítskúraðir. Eva Joly varaði við þessu og hafði rétt fyrir sér.