Hystería dómsmálaráðherra

Punktar

Hvaða rugl er þetta í dómsmálaráðherranum. Er Ragna Árnadóttir að reyna að framkalla óeirðir? Út af skýrslu, sem ekki mun æsa neinn til óhæfuverka. Ráðherrann segist hafa verið í sambandi við landssamband lögreglumanna vegna birtingar skýrslunnar! Hvað kemur málið stéttarfélagi við? Hún á að tala við lögreglustjóra, ef hún er skelfingu lostin. Ég þekki engan, sem er skelfingu lostinn út af væntanlegri skýrslu um afglöp pólitíkusa og embættismanna. Þau eru hversdagsleg. Getum við ekki fengið að vera í friði fyrir hysteríu í ráðuneytinu? Er stéttarfélag úti í bæ orðið að bjargvætti þjóðarinnar?