Hysterían okkar

Punktar

Við vildum ekki, að Kaldbakur eignaðist Tryggingamiðstöðina. Vildum ekki hringsöluna í Exista. Vildum ekki, að Philip Green leppaði Baugsmenn. Vildum ekki, að Baugur skipti um kennitölu á fjölmiðlum. Viljum ekki, að Árvakur skipti um kennitölu á Mogganum. Viljum ekki, að KPMG endurskoði sjálft sig. Sumt af þessu stóð tæpt, en bjargaðist vegna “hysteríu” bloggaranna. Enn er samt hver þjófnaðurinn á fætur öðrum undirbúinn í bönkunum. Allur er hann undir eftirliti pólitískra bankaráða, sísofandi Fjármálaeftirlits og andvana bankaráðherra. Við skulum vona, að bloggarar verði áfram “hysterískir”.