Velferðarráðherra vill ritskoða fjölmiðla og internetið. Flokkar gagnrýni á sig sem hatursorðræðu! Eygló Harðardóttur finnst þeir vega of hart að stjórnsýslu hennar. Hún þykist vera gæðablóð, sem vilji öllum vel. Auðvitað er henni velt upp úr tjöru og fiðri. Hún hefur nefnilega aldrei látið gott af sér leiða, bara flutt með sér böl. Hefur skoðað mál, skipað nefndir, látið gera gátlista. Ræðst að lítilmagnanum. Hrifsar af öldruðum og öryrkjum hækkanir, sem þeir eiga inni um áramótin. Einstæð svívirða Eyglóar. Ekkert hefur heldur gerzt til að frelsa fólk úr spennitreyju okurvaxta af húsnæðislánum. Eygló er mjög illur ráðherra.