Ilmurinn af umheiminum 2

Punktar

Tæknin er orðin okkur svo ljúf, að heima hjá okkur getum við leitað að hagstæðum fargjöldum og gistigjöldum og gripið gæsina, þegar hún gefst. Þegar við fórum síðast til Prag, höfðum við á veraldarvefnum fundið hótel við sporð Karlsbrúar og gátum séð þar, hvaða herbergi sneru að brúnni og hvað þau kostuðu. Úr slíku herbergi gátum við virt fyrir okkur mannlífið á brúnni meðan við hvíldum okkur milli gönguferða. Sama er að segja um hótelið við Rialto-brúna, miðpunkt Feneyja, þar sem ég vaknaði við ilminn inn um opinn glugga af fiski og ávöxtum í bátum, sem voru að fara á markaðinn. Alls konar vildarvinjar af því tagi er með smávegis þolinmæði hægt að finna á veraldarvefnum.