Sarah Palin er svo eitruð, að George W. Bush roðnar, sagði brezka blaðið Independent í gær. Eins og ég hef áður sagt er hún algert frík í andstöðu við náttúruvernd. Hún vill bora eftir olíu á öllum verndarsvæðum Alaska. Hún vill taka birni af válista, gegn vilja Bush. Hún hafnar algerlega, að maðurinn sé að breyta vistkerfi sínu, sem Bush viðurkennir þó. Einnig talar hún við guð á hverjum morgni eins og Bush og Tony Blair. Það eru hættulegir pólitíkusar, sem hafa vald sitt frá guði. Hann segir þeim að eira engu, því að heimsendir sé í nánd hvort sem er. Palin er meira frík en Bush og Blair.