Ingibjörg er steinbarnið

Punktar

Ógæfa Samfylkingarinnar byrjaði með valdatöku Ingibjargar Sólrúnar. Rak út norræna kratismann og innleiddi brezkan Blair-isma. Innifalið var dálæti á fjárglæfrafólki. Samfylkingin smellpassaði þannig inn í hlutverk Framsóknar, þegar þjóðin var farin að hata Halldór Ásgrímsson. Ingibjörg settist í brúna hjá Geir Haarde eins og nýr og betri Halldór. Saman keyrðu þau þjóðarskútuna á hvolf. Auðvitað má kenna Halldóri og Framsókn um einkavinavæðinguna. En Geir og Ingibjörg voru í brúnni, þegar skútunni hvolfdi. Eftir ræðu Jóhönnu í gær verður Ingibjörg ævinlega steinbarnið í kviði Samfylkingarinnar.