Ísland er skrípó

Punktar

Vigdís Hauksdóttir er skrípó. Springur ítrekað í loft upp. Gæti spurt vininn Frosta, hvernig falsa eigi fjöldaáskoranir til að Andrés önd geti tekið þátt. Hanna Birna er líka skrípó. Horfði ekki á Birgitte Nyborg í Borgen. Losar sig því ekki við óhæft aðstoðarfólk, sem kann sér ekki læti. Íbúðalánasjóður er skrípó. Á nú að fá nýja kennitölu og heita Húsnæðisstofnun eins og að fornu. Ríkisstjórnin þyrfti sjálf að skipta um kennitölu eins og sannur Íslendingur. Kristján Þór er skrípó, skiptir þrisvar á einu ári um skoðun á nýjum spítala. Og þorpsfíflið sjálft hugðist verða borgarstjóri. Ísland í heild er skrípó.