Íslandssími flær ykkur

Punktar

Varið ykkur á notkun GPRS síma erlendis til að tengjast veraldarvefnum. Íslandssími hefur gert mjög óhagstæða reikisamninga við erlend símafyrirtæki, sem fela í sér óheyrilegan kostnað fyrir þá, sem vilja komast á netið með farsímanum. Kynning og sala þessar þjónustu er ótímabær, fyrr en betri samningar nást. Einkum er hættulegt að nota þessa tækni í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi og Sviss. Sem dæmi má nefna, að vikunotkun á netinu kostaði mig aðeins 5.000 krónur í Feneyjum, en heilar 60.000 krónur í Kaupmannahöfn. Þetta er tækni, sem ekki er orðin þroskuð.