Heimska Íslendinga er svo yfirgengileg, að nú vilja þeir reisa olíuhreinsun á Vestfjörðum. Fyrir hráefni, sem verður illfáanlegt eftir 25 ár. Ekki er hægt að hugsa sér meira skammtímadæmi en olíuhreinsun. Miklu nær er að reisa kjarnorkuver þar, því að misþyrming Íslendinga á auðlindum sínum mun ekki duga okkur. Við munum þurfa rafmagn til allra hluta, svo sem til að knýja bíla og skip. Flugvélar verða of orkufrekar til að verða notaðar í náinni framtíð. Við höfum nú þegar Reyðarfjarðarál á samvizkunni. Það er svipuð firra og aðild landsins að útlendu stríði og hernámi. Fólk er fífl.